Stjörnuspá;)
Fyrir okkur nördin;)
14.09.2006 22:22:44 / annarut

*** Ný síða!!!! ***

Ég er komin með nýja síðu....

http://annarut.bloggar.is/

Endilega tékkiði á henni;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 09:20:01 / annarut

***********

Djísss.... Ég er búin að vera óendanlega löt að skrifa hérna inn undanfarið. Hef reyndar líka haft nóg að gera seinustu vikuna, Lovísa að byrja í nýjum leikskóla og vorum við því í aðlögun á daginn og ég að vinna á kvöldi. Og ég get bara ekki annað en dáðst að þessum yndislegu konum/stelpum sem vinna á leikskólanum og bara leikskóla yfir höfuð... Þetta er sko alveg hægara sagt en gert og ég verð nú bara að viðurkenna það að það væri sko búið að leggja mig inn á Klepp eftir að hafa unnið einn dag á leikskóla...8| En aðlögunin hefur gengið alveg rosalega vel og er mín alsæl á nýja leikskólanum og er strax búin að eignast fullt af vinkonum;)

So er djammleti alveg að fara með mig undanfarið... So sorry Eva mín:( Það var senst staffapartý í vinnunni á föstudagskvöldið og ætlaði mín sko aldeilis að láta sjá sig en neinei letin tók yfirhöndina loksins þegar ég var búin að vinna... Og í  partýinu hjá Hannesi um seinstu helgi fórum við bara heim þegar allir voru á leiðinni í bæinn:$ Veit ekki alveg hva er að gerast og spurning hversu lengi þessi leti varir...hihihi;)

Jæja ætli það sé ekki best að fara að hafa ofan af fyrir mýslunni minni, við erum nebbla að fara til tannlæknis í dag til að láta gera við glerungsgalla hjá henni og má hún ekkert borða áður en við förum og tíminn er kl 11...Hjálp!!!8| Við sem leyfðum henni (eða kannski frekar létum hana8)) vaka frameftir í gærkvöld til að hún mundi nú sofa út í morgun en neinei mín vaknaði kl 7.30 þannig að þetta verður mjög svo skemmtilegur morgun...8|

Og Birna ég varð að fá að stela þessu hjá þér, þetta er so alltof fyndið:haha:

Endilega tékkiði á þessu;)

http://boards.live.com/Rockstarboards/thread.aspx?ThreadID=76214&BoardsParam=PostID=1212845

Já og btw... Einar til hamingju með daginn:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 00:22:20 / annarut

***Verðandi lífefnafræðingur***

Já ótrúlegt en satt að þá lifði ég af þessa seinustu viku, var sko alveg farin að efast um það á tímabili en þetta hafðist allt að lokum:D

Á laugardaginn skelltum við okkur so í rafting niður Hvítá. Alveg hrikalega gaman:haha::haha::haha: Ég reyndar áttaði mig á því að ég er lofthræddari en ég hef viljað viðurkenna fram að þessu en ég sigraðist á því... Allavega nógu lengi til að láta mig gossa niður af hæsta klettinum þarna8| Reyndar vissi ég að það var ekki spurning um hvort ég ætti að stökkva eða ekki heldur var spurning um hvort ég mundi stökkva sjálf eða vera hrint fram af... Og þá fannst mér nú betra að stökkva sjálf:lol:

Um kvöldið skelltum við okkur í partý hjá bekknum hans Helga og þurftum við að hafa okkur alla við í drykkjunni til að ná hinum... Og okkur tókst samt ekki að ná þeim þó við hefðum reynt okkar besta, kannski líka sem betur fer...hahahhahahahhah8)

Fyrri part sunnudagsins þóttumst við so vera ægilega hress og skelltum okkur í húsdýragarðinn í góða veðrinu... Vá hva ég var þakklát fyrir að geta skellt á mig sólgleraugunum og látið sem ég væri ægilega fersk... Því ég var soooo allt annað en það:$ Kvöldið var so bara tekið í ekta þynnku... KFC og vídjó...hihihi8)

Annars er hún Halla mín loksins flutt í borg óttans og vá hva það er notalegt að hafa hana bara í næsta húsi:haha::haha::haha: Veit reyndar ekki alveg hvort henni finnist það jafn þægilegt þar sem hún var beðin um að passa fyrir stóru systur sína strax fyrsta daginn...hihihi8)

Well well Magni að fara að byrja þannig að ég ætla að henda mér uppí sófa...Allir að muna eftir að kjósa, ég ætla allavega að kjósa á eftir í fyrsta skipti....;)

Já og eitt enn... Næstum búin að gleyma aðalfréttunum... Ég náði prófinu á föstudaginn þannig að ég get titlað mig lífefnafræðing frá og með 21. október næstkomandi:haha::haha::haha:

See ya sweety-pies!!;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 10:36:52 / annarut

***Nýjar myndir***

Var að skella inn nýjum myndum bæði hérna og á síðuna hennar Lovísu Marý....    Endilega tékkiði á þeim;)

Jæja ætli það sé ekki best að fara að læra oggu pínu ponsu, enda varla annað hægt þetta er so hrikalega skemmtilegt fag...

Ólífræn efnafræði...

 Segir það ekki bara allt sem segja þarf....HJÁLP!!!8|

Jæja best að fara að gera eikkað áður en kallarnir í hvítu sloppunum mæta hingað!!!

Wish me luck...;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 12:42:53 / annarut

***Menningarnótt***

Jahérna hér... Þessi dagur byrjar allt annað en vel:whut: Byrjaði á því að mæta alltof seint í vinnuna því maraþon hlaupararnir lögðu undir sig götuna akkúrat þegar strætó þurfti að komast, alveg líka til að nudda mig uppúr samviskubitinu að vera ekki að taka þátt:S En þegar ég loksins var mætt í vinnuna þá óskaði ég þess að þessir blessuðu maraþonshlauparar hefðu verið lengur að blokka strætóinn því það sem beið mín hér eru bara hundfúlir karlmenn sem vilja fá Enska boltann strax sem byrjaði áðan... Hvað er málið?? Hvernig væri að þeir hefðu nú hugsað útí þetta aðeins fyrr og gætu þá sleppt því að snappa á mig... Það væri nú alveg óskandi en alltof mikil bjartsýni... Ég verð nú bara að viðurkenna að það er eins gott að það er símalína á milli og ég þurfi ekki að feisa karlmenn þegar ég segi þeim að það taki allt uppí 3 vikur að fá Enska boltann sem byrjar eftir 20 mín8|8|8|

En allavega... Nöldurkvótinn búinn í dag8) Við fórum í partý uppí Mosó í gærkvöldi, svaka stuð. Ég hefði samt þurft að innbyrða pínu áfengi til að detta í sama gírinn og flestir voru í:lol: Ætli mar verði ekki bara að taka það út í kvöld...hihihi8) Og miðað við stjörnuspánna mína í dag þá getur þessi dagur bara farið batnandi:D

Steingeit (22.des - 19.jan)
Heillastjörnur steingeitar eru svo sannarlega bjartar og margar og fylgja þér hvert fótspor. Þú mátt ekki leyfa þér að gleyma því sem hjarta þitt og hugur þrá að takast á við.

En jæja best að halda áfram að díla við "geðgóða" fótboltaþyrsta karlmenn og halda áfram að telja niður, 6 og 1/2 klst and counting;)

Já og btw það verður EKKI partý á Eggertsgötunni í kvöld, sumir voru búnir að drekka aðeins of marga í gærkvöldi og var búinn að gleyma að við erum að fara í ammæli í kvöld;) En við lofum að bætum bara úr því fljótlega;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 09:57:19 / annarut

***************

Það er barasta komin helgi og ég er í Reykjavík og í fríi. Þetta er alveg kannski önnur eða jafnvel þriðja helgin sem ég er í borginni í allt sumar og vildi soooo mikið vera fyrir norðan núna og fara þangað í dag

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1217600:( :(

En við verðum bara að fara næst;)

Annars tókst mér að næla mér í pestina sem næstum annar hver maður er búin að fá í sumar... Hvað er það?!?!? Ég sem hélt að mar gæti ekki verið veikur á sumrin:S En allavega þá er þetta nú allt að koma sem betur fer enda ætlum við mæðgur að skella okkur í bíó með Hildi og vinkonu hennar í dag:D Vona bara að það verði betri mynd en ég sá í gærkvöldi, enda ekki mikil hætta á öðru;) Við tókum nebbla The Hills have Eyes og þvílíkur viðbjóður, ég held í alvöru að ég hafi aldrei séð jafn ógeðslega mynd og ég er engin svakleg tepra, fannst t.d. Hostel alveg ógeðsleg en samt góð og Íslendingurinn í myndinni er nottla baaaara snillingur:D En The Hills have Eyes er BARA ógeðsleg, mæli sko ekki með henni8| 

En jæja best að kíkka aðeins í bók sona í morgunsárið... Jájá ég er að fara í sumarpróf:( En þetta er síðasta prófið sem ég tek í HÍ í bili þannig að það verður engin prófalestur hjá mér fyrir þessi jól;) Það er sko nákvæmlega þessi hugsun sem er að koma mér í gegnum þetta blessaða sumarpróf:$ Ég ætla senst að vinna í vetur og aðeins hvíla mig á bókunum áður en ég ákveð eitthvað með masterinn, enda nægur tími;)

Góða helgi allir saman:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 18:40:34 / annarut

***Síldarævintýrið***

Vává alveg hreint meiriháttar helgi að baki:haha::haha::haha:

Lögðum af stað á Sigló á fimmtudagskvöldið og vöknuðum í þvílíkri blíðu á föstudagsmorguninn, algjör steik:D Á föstudagskvöldið var so grillveisla og var setið lengi úti við söng og drykkju:lol: Þegar gamla liðið fór að týnast inn fórum við í partý til vinar Helga, soldið fyndið að vera eina stelpan í strákapartýi, er ekki alveg vön því...hihi;) So var haldið niðrí bæ á ball á Bíóinu og þvílíkt sem það var gaman, dönsuðum alveg af okkur rassinn og NOTA BENE þá var ég eina stelpan allt kvöldið og kannaðist við eitt andlit á öllu ballinu...frekar fyndið:lol:

Á laugardaginn vorum við so ótrúlega menningarleg, fórum á ljósmyndasýningar, myndlistasýningu og skoðuðum Síldarminjasafnið. Enduðum so á að fara í tívolíið enda voru sumir búnir að bíða eftir því allan daginn;) Kvöldið var so tekið bara í rólegheit eftir grillveislu númer tvö;)

Monsoon rigningin á sunnudeginum var nú alveg til þess að við láum í leti mest allan daginn, alveg hrikalega næs!!!8) Um kvöldið var so grillveisla númer þrjú, ég er sko búin að borða meiri grillmat þessa einu helgi en ég er búin að gera í allt sumar...hihihi:D Við létum nú samt ekki rigninguna stoppa okkur í að kíkka á ball með Páli Óskari seinna um kvöldið, enda er hann nottla bara snillingur;) Hann var alveg að missa sig í Eurvision og gay tónlist og á miðju balli tilkynnti hann so að hann ætlaði að spila þjóðsöng Íslendinga og hélt ég þá að hann væri alveg búinn að missa það, þvílíka mood killer lagið... En neinei spilaði hann þá ekki It´s raining men.... bwhahhahahhah...Þvílíkur snillingur:haha::haha: Þjóðsöngur númer tvö var so spilaður seinna um kvöldið og var það I am who I am:haha: Þetta lýsir því í hnotskurn hvernig tónlist var spiluð og ótrúlegt en satt þá þekkti ég alveg heila fjóra þetta kvöldið;)

Ég skelli so inn myndum frá helginni sem fyrst eða um leið og ég kemst að í tölvunni heima hjá mér...hihihi;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 10:54:52 / annarut

***

Úff það er alveg brjáluð bloggleti í gangi hjá mér þessa dagana:$ En þetta er sona það helsta:

  • Footloose er hrein snilld, alveg hrikalega gaman:haha:
  • Lovísa Marý mín kemur loksins heim á laugardaginn, get ekki beðið:D
  • Byrja í sumarfríi á laugardaginn:D
  • Síldarævintýrið á Sigló er málið um versló, reyndar held ég bara hjá okkur...hehehe:lol:
  • Ég þoli ekki World of Warcraft!!!
  • Mig langar í útilegu, spurning um að tjalda bara í garðinum á Hverfisgötunni um versló8) (Hverfisgötunni á Sigló sko, ekki í Reykjavík;))
  • Þarf að fá eikkað við nammisýki, eikkað sem virkar fljótt og örugglega, helst lengi líka...hihihi;)
  • Halla systir er að flytja í borg óttans í haust og bara í næsta hús við mig. Algjör snilld:haha::haha:

Jæja læt þetta nægja í bili;)

See ya!!;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 10:25:53 / annarut

***Eintóm gleði og hamingja***

Váts... þetta sumar hefur so innilega einkennst af alveg hrikalega skemmtilegum helgum og er enn ein slík að baki. Fór til Ak á fimmtudaginn til að mæta á hið langþráða Gagga-reunion og að ógleymdri tvöfaldir afmælisveislu á laugardaginn hjá sætustu tvíburunum á Akureyri og þótt víðar væri leitað;) Þeir eru senst orðnir eins árs töffarar og mér sem finnst þeir vera nýfæddir...:$

En Gagga reunion-ið var alveg tær snilld, rosalega góð mæting og allir í svakalegu stuði:haha::haha: Reyndar stoppuðu nú sumir styttra en aðrir og var þeim sárt saknað á dansgólfinu á Kaffi Ak á laugardagskvöldið. En herlegheitin byrjuðu á Kaffi Amour á föstudagskvöldið og fylltum við alveg efri hæðina þar og rúmlega það. Það var ekkert smá gaman að hitta alla aftur og margir sem mar hefur ekki séð í 10 ár.

 
Á laugardaginn byrjuðum við mæðgur á því að fara í afmælið til strákanna, sem var reyndar frekar stutt stopp þar sem mæting í óvissuferðina var kl. 15. Í óvissuferðinni byrjuðum við á því að skoða skólann sem var ekkert smá breyttur og þurftum við alveg leiðsögn um hann því við könnuðumst ekkert við okkur. Síðan var ferðinni heitið í Dynheima sem einnig hafa breyst ansi mikið og vorum við illilega farin að átta okkur á því hversu gömul við virkilega erum orðin... En síðan var haldið í Kjarnaskóg og þar
vorum við nú fljót að gleyma því og urðum alveg 16 ára aftur... hihihi:lol::lol: Enduðum við so niðrí bæ þar sem við hristum á okkur rassinn á Kaffi Ak við eldgömul lög, endalaust flash-back þar í gangi;) Alveg hrikalega gaman:haha::haha::haha:

 
Ég átti so pantað flug eldsnemma á sunnudagsmorguninn og ég verð nú að viðurkenna að ég var ekki alveg sú hressasta í vélinni, spurning samt hvort ég eða Jói áttum vinninginn í hressleika...hehehe:lol: En við vorum nú eldhress miðað við sæta töffarann sem kom að sækja mig á völlinn...hihihihi8)

So er það bara hvalaskoðun á fimmtudaginn og Footloose á föstudaginn :haha::haha::haha:

Jæja best að fara að gera eikkað af viti hérna í vinnunni;)

Hafiði það gott sweety-pies;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 15:27:23 / annarut

***Til hamingju Ítalía***

Já akkuru geta þeir ekki bara spilað sona... Geggjað flottir!!!:lol:

Allavega þá horfði ég á alveg tvo heila leiki um helgina, sem er held ég meira en ég hef horft á fótbolta um ævina samanlagt. En ég hef á tilfinningunni að það verði breyting þar á því það er nú bara ansi skemmtilegt að horfa á þetta;)

Annars erum við mæðgur í sumarfríi núna þessa vikuna sem er ansi ljúft en sumar-veðrið mætti nú líka alveg fara að sýna sig...:S

Jæja þetta verður bara stutt núna þar sem ég verð að halda áfram með skemmtidagskránna fyrir snúlluna mína8) Ég varð bara að deila þessum myndum með ykkur...hihihi;)

Hafiði það gott sweety pies;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 08:40:33 / annarut

***Esjan baby!!***

Við létum loksins verða af því í gær að arka uppá Esjuna, fallegasta fjall Reykvíkinga;) Eins og við var að búast þá var útsýnið þar uppi alveg hrikalega flott. Það kom mér reyndar alveg rosalega á óvart hvað það var mikið af eldra fólki að labba þarna og konan með snjóhlífarnar nottla klárlega best:D Ég meina hver veit, það gæti allt í einu farið að snjóa um mitt sumar þar sem mar er nú einu sinni í fjallgöngu... hahahahhahahahahahhahahahaha:haha:

Hérna eru myndir teknar af Esjunni í gær;)

So er það bara þjóðlagahátíð á Sigló um helgina, brjálað stuð:haha::haha::haha:

Góða helgi;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 21:57:06 / annarut

***Mánudagur***

Jæja þá er mar komin aftur í borg óttans eftir alveg rosalega góða helgi á Akureyri. Við mæðgunar lögðum af stað beint eftir vinnu á föstudaginn og ótrúlegt en satt þá var mín alveg reddí, búin að pakka og setja í bílinn og allt áður en hún fór í vinnuna á föstudagsmorguninn... jabbs ekki vanalegt það...hihi:lol:

Á laugardaginn var opnunarhátíð í Byko og ammælishátíð í Landsbankanum og fórum við Önnurnar með prinsessurnar okkar á báða staði, vorum alveg vinsælustu mömmurnar þann daginn;) Enda komum við með tvö sæt fiðrildi heim:D 

Ég varð að skella inn einni mynd af þeim vinkonunum, alveg rosalega sætar:D

Á laugardagskvöldið kíktum við so á Kaffi Akureyri og hristum alveg af okkur rassinn í orðsins fyllstu:lol: Það var líka so geggjað gott veður um nóttina að mar tímdi varla að fara heim, en við létum það nú samt eiga sig að fara í eftirpartýið sem okkur var boðið í en það var sko ekki vegna þess að við værum orðnar eikkað þreyttar heldur vorum við bara hrikalega svangar... bara sona so það sé á hreinu..hihi:lol: En þar sem ma&pa voru að gefa frumburðinum sínum so alltof flotta myndavél að þá voru engar myndir teknar í þetta skiptið, var so engan veginn að tíma að taka hana með á djammið. Hér eftir þarf ég að vera í almennilegu ástandi til að geta tekið myndir so ég geti passað vel uppá myndavélina8)

Annars var ég að hugsa um að hraðspóla morgundaginn, er ykkur ekki annars sama??8) Merkilegt hvað tíminn virðist líða áfram á snigla-hraða þegar mar er að bíða eftir einhverju skemmtilegu, alveg óþolandi!!!!

En jæja ætla að halda áfram að vinna;)

See ya sweety pies!!;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 16:41:58 / annarut

***Góða helgi!!***

Úff ég hef ekki verið alveg nógu dugleg að blogga undanfarið en þetta er sona það helsta:

  • Búin að fá Lovísu Marý mína heim aftur:haha: Alltaf hálf vængbrotin án hennar.
  • Hildur komin heim á klakann og er ég strax búin að ná deiti með gellunni og annað framundan:lol:
  • Ætla að skella mér norður beint eftir vinnu í dag:haha:
  • Ætla að kíkka á djammið á Akureyri annað kvöld, Skímó í Sjallanum og so hef ég heyrt að það er einn mjöööög skemmtilegur djammari sé á leiðinni á djammið *hóst* Elva *hóst* og það er nú ekki á hverjum degi sem mar nær að dilla sér með henni;)
  • Loksins búin að búa til barnalandssíðu fyrir skvísuna mína, endilega tékkiði á henni og ekki gleyma að kvitta í gestabókina;)
  • Á ekki eftir að vinna nema í viku áður en ég fer í viku sumarfrí, á reyndar alveg eftir að ákveða hvað ég ætla að gera. Er einhver geim í útilegu??:lol:

Jæja bara 15 mín eftir af vinnudeginum og so er það Ak city!!:haha::haha:

Góða helgi allir saman;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 15:00:50 / annarut

***

Þú veist að það er 2006 ef.....

1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
    því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta 
    bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir  tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
      fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
      framfæri einhverstaðar EF þú féllst fyrir þessu.

Þetta er nottla baaaara snilld!!;)

Endilega tékkiði á nýju skoðanakönnuninni!!;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 00:45:45 / annarut

Einmannalegt!!

Já það er sko einmannalegt í kotinu þessa dagana, Lovísa Marý á Akureyri og Helgi í Þýskalandi, allavega þessa stundina;). Hann og Einar bróðir hans skelltu sér nebbla á sona semi InterRail og ætla að vera á flakkinu í 16 daga þannig að hann gæti verið kominn til Frakklands á morgun;) En ég hef allavega að mestu forðast það að vera heima hjá mér undanfarið og reynt að njóta þess að þurfa einungis að hugsa um sjálfan mig og vera ekki háð neinum eða neinu8) Það gengur alveg ágætlega... allavega þangað til mar kemur heim til sín á kvöldin:|

En jæja nóg af væli...8) Það er mjög so skemmtileg helgi framundan, útskriftarveisla hjá Lovísu verðandi kennara og so er Hildur að koma til landsins og ætlum við nú að taka smá djamm á laugardaginn, bara aðeins að rifja upp gamla takta:lol: Spurning um að við reynum nú að æfa okkur í mjaðmahreyfingunum þegar Lovísa sér ekki til... Hvernig hljómar það Hildur??...hihihi;)

En ég tók þetta test á einhverri síðu og útkoman var geggjað fyndin því í kvöld var ég í heimsókn hjá Ómari og Kiddu við vorum einmitt að tala um aldur og sona aldurs-“fóbíu” og þá sagði ég að ég vildi sooo að mar mundi bara hætta að eldast þegar mar væri 21 árs, það væri sona ideal aldur og hvað haldiði ég er greinilega 21 árs í anda... hahaha;)

You Are 21 Years Old

 

Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.

What Age Do You Act?

http://www.blogthings.com/whatagequiz/

En jæja ætli það sé ekki best að fara að skríða uppí rúm...

Góða nótt sweeties:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan